Ekki furða að gaurinn hafi ekki getað fylgst með bönkunum

hann hefur verið allt of upptekin við að horfa á sínar millur tikka inn.

Djöfulsins siðleysi er þetta. Að fjármálaeftirlitið sé að borga ofurlaun. Það væri eins og að verkalýðsfélögin væru að borga sínum yfirmönnum ofurlaun. Ahhh, bíddu, þau eru að því.
Meira siðleysi.

Ég er um það bil að fá nóg....... .   .       .


mbl.is Forstjóri Fjármálaeftirlits með 1,7 milljónir í laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er það sem heitir að drulla upp á bak.

ISG er ekki þjóðin. Ekki einu sinni táknrænt. Nú hefur hún snúist á ás með sjálfstæðishundunum um að vernda hátekjulýðinn, sem kallar mótmælendur skríl, en sér ekki að mótmælendur eru bara táknrænt skríll.

Nú er svo komið að ég mun aldrei kjósa D né S. og alls ekki B.

Þakkir til ISG, táknrænt, fyrir að hafa sannfært mig um að samflykkingin sé ekki jafnaðarmannaflokkur, ekki einusinni táknrænt.

Áfram táknrænt Ísland ohf


mbl.is Hátekjuskattur bara táknrænn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt farið til vítis

og mennirnir sem eru ábyrgir sitja enn í ríkisstjórn, seðlabanka nú eða eru að kaupa fyrirtæki á lánum og halda hringrásinni áfram.

Það þarf að fara að gera eitthvað og það róttækt.


mbl.is Ísland í dag samkvæmt Economist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drepa niður íslenskan iðnað?

é ekki frekar að reyna að peppa hann upp? Lækka álögur á íslenskum bjór og hvetja fólk til að velja íslenskt?

NEi, bst að hækka allt draslið bara. Drepa alla innlenda framleiðslu.


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er bjarghringurinn úr steinsteypu?

Krónan fór ágætlega af stað við fleytinguna (sem samt var keyrð upp af höftum og gefur því engan vegin raunverulega mynd af árangri fleytingar) en nú sunkar hún niður á við, annan daginn í röð.
ÍSlendingar, biðjum þess öll að seðlabankinn fari ekki að nota lánið frá IMF til að halda henni uppi.

mbl.is Krónan veiktist um 1,2%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki hugsa, bara framkvæma.

Það hefur allavega verið siður hjá stjórnmálamönnum sem ráða. Það þarf ekkert að hugsa um það að lækka laun ríkisforstjóra. Bara lækka þau.
mbl.is Vill lækka laun ríkisforstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brandarinn heldur áfram

einn verður hengdur, en þeir sem sviku mest verða gerðir að hetjum. Það þarf enginn að segja mér það, að það hafi aðeins eitt fíflið millifært allt sitt drasl þegar það vissi í hvað stefndi, því þau vissu í hvað stefndi.

Rykinu hefur verið slegið upp, en ég vernda augu mín og reyni að sjá í gegnum spillinguna.
Reynið að gera slíkt hið sama, til að vernda komandi kynslóðir.


mbl.is Lögregla rannsakar bankastarfsmann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hringrásarvíkingarnir

Enn á ný er það staðfest að ég hafði rétt fyrir mér. Fyrirtækin seldu sig hvort öðru og alltaf hækkaði verðið og þar með veðið líka. Svona gengu félögin fram og aftur á milli sín, alltaf í höndum sömu eigenda, en bara mismunandi ehf. Svo keypti sauðsvartur almúginn eitt tvö bréf í góðri trú um að fyrirtækið væri rísandi sól og myndi að lokum skila milljónföldum hagnaði.

En raunin var önnur. Fyrirtækin gleyptu peningana og voru í raun aldrei sterk, nema á pappírunum.
Eina raunverulega fé þessara fyrirtækja, var það sem almenningur setti inn með kaupum á skuldabréfum. Hitt voru bara lánsupphæðir í banka, banka sem var í eigu sömu mannana og fyrirtækin sem fengu lánin til að kaupa hvort annað.

Davíð Oddson hefði betur einbeitt sér að forða því að eigendur bankana gætu átt fyrirtæki en því að eigendur fyrirtækja gætu átt fjölmiðla.


mbl.is Sami maður beggja vegna borðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki getur fólk treyst bönkunum

en ég á enga milljarða. ekki einusinni milljón. ekki einu sinni hundraðþúsund kall. Jafnvel ekki tíuþúsund kr. Frown

Getum við keypt bankana fyrir peningana sem við eigum, nei, þeir eiga peningana, ekki við.


mbl.is Þjóðin lúrir á milljörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisskatturinn ohf

HVENÆR Á AÐ HÆKKA HÁTEKJUSKATT OG FJÁRMAGNSTEKJUSKATTTTTTTT?????

Ætlum við að sætta okkur við þetta?


mbl.is Tekjuskattur og útsvar hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Diesel

Höfundur

Diesel
Diesel
Lúsugur verkamaður sem að ýmsir hafa keppst við að skuldsetja, 4 barna faðir, harðgiftur og kjaftfor.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 459

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband