1.12.2008 | 19:53
En hann mun samt sitja sem fastast.
Það er ekkert fararsnið á Davíð. Hann er ekki á förum úr seðlabankanum. Það skiptir engu máli hversu kröftuglega verður mótmælt, hann fer ekki.
Pétur nokkur Blöndal, sem er ekki maður að mínu skapi, sagði á Bylgjunni síðdegis í dag að ef hann héldi að það myndi verða til þess að alælt yrði eins og það var ef að Davíð færi, þá myndi Pétur sjálfur fara fram á það. Mig langar að benda Pétri á það, að það hefur ekki nokkur maður sagt að það lagist allt þó að Davíð fari, en það væri nú samt fjandi góð byrjun.
Hver man ekki eftir brandaranum góða. "Hvað kallar þú hóp af lögfræðingum á hafsbotni?" og svarið er að sjálfsögðu "góða byrjun"
Ég er ekki mikill skaphundur, en ég skil samt að fólk sé reitt, ég sjálfur er reiður og það sver ég að ef að ekki fara að koma frekari skýringar og áætlanir frá ríkisstjórn (og þá meina ég áætlanir sem að stuðla ekki bara að því að lengja í snöru skuldara) þá fer ég sjálfur að mæta í svona partý, þar sem lögreglu er storkað og fólk er tilbúið að verða meisað í nafni almennings í landinu.
Eitt gott ráð til fólksins sem er í hættu á að verða "meisað". Verið með sundgleraugu, þau eru ódýr og verjast vel þessu eina vopni íslenskrar lögreglu.
Eitt enn. Pétur Blöndal vildi að almenningur kæmi með lausnir frekar en að stofna til óeirða.
Pétur, hlustaðu þá.
Hér á eftir fara nokkur dæmi um lausnir sem geta auðveldað okkur lífið í landinu næstu árin.
1. Kjósum í vor.
2. Köstum krónunni.
3. Ríkið skal kalla til sín kvótann.
4. Ríkið skal lækka laun sín um að minnsta kosti 20%
5. Þingmenn skulu ekki fá bílstjóra
6. Þingmenn skulu ekki hafa aðstoðarmenn, þeir eru fyrir rokkstjörnur
7. Þingmenn skulu borga sína símreikninga sjálfir. (einfalt dæmi, ef hver er með 5þús. kr. símreikning á mánuði þá er það u.þ.b. 60þús á ári, þingmenn eru 63 og því gerir heildarsumman 3,78milljónir á ári. Ef að venjulegt launafólk á að geta borgað sína reikninga sjálft, þá ættu ofurlaunaþingmennirnir ekki að vera í vandræðum með það)
8. Sjáum hvaða samninga við fáum hjá ESB, ef okkur líka ekki samningarnir, þá bara segjum við nei.
9. Hækkum verð á raforku til stóriðju.
Kæri Pétur, þetta ætti að duga þér út þetta kjörtímabilið, að minnsta kosti á þeim hraða og þær áherslur sem að Alþingi hefur í dag.
Ráðist inn í Seðlabankann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Diesel
Færsluflokkar
Bloggvinir
- brell
- stormsker
- brjann
- hvirfilbylur
- svartur
- nimbus
- bjarnihardar
- prakkarinn
- kreppukallinn
- jon-o-vilhjalmsson
- hagbardur
- utvarpsaga
- thj41
- ipanama
- vefritid
- gbo
- jensgud
- reykur
- einari
- killjoker
- gandri
- gullvagninn
- skessa
- gorgeir
- disdis
- idda
- kreppan
- juliusbearsson
- katrinsnaeholm
- larahanna
- huldumenn
- sjonsson
- savar
- vilhjalmurarnason
- vga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 604
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég myndi allavega skilja það að löggan fengi rafbyssur þeas miðað við ástandið í dag.
Diesel, 1.12.2008 kl. 21:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.